Afmælishátíð - Allegro 10 ára!

Næstu helgi ætlar ALLEGRO að halda upp á 10 ára afmælið!

Hátíðin hefst föstudaginn 10.10. og þann dag verður ekki kennsla. Þá verður hins vegar opið hús, boðið upp á kaffi og með því, og fyrstu þrír tónleikarnir í afmælistónleikaröð ALLEGRO, kl. 15.30, 16.30 og 17.30. Laugardaginn verða hóptímar að vanda, en opið hús og gestir boðnir velkomnir, og laugardagstónleikarnir eru fjórðu tónleikarnir í röðinni! Síðan verða síðustu tónleikarnir kl. 15.00 á sunnudaginn í Salnum í Kópavogi. Þar verður samleikur í öndvegi, meðal annars mun eldri strengjasveit skólans flytja verk eftir Þórð Hermannsson, sem stundar nám í tónsmiðum við Listaháskóla Íslands og var áður nemandi í Allegro.