Ef forvitni hefur vaknað hjá einhverjum um smáfiðluhóp og píanó piccoló sem eru á stundatöflunni er því til að svara að hér er um tilraunastarfsemi að ræða. Með tilkomu ungbarnahóps 0-3 ára færðist meðalaldur nemenda niður, en um leið myndaðist aldursbil þar sem nemendur voru of gamlir í ungbarnahóp, en ekki nógu gamlir til að byrja í hljóðfæranámi! Þessir hópar sem Gyða og Þórdís sjá um eru tilraun til að brúa þetta bil.