Er þetta skólinn þar sem er kaffi á laugardögum?
Þannig spurði foreldri sem hringdi til að fá upplýsingar um nám, skólinn hefur á sér gott orð fyrir öflugt foreldrastarf. Félagslegi þátturinn gegnir veigamiklu hlutverki, bæði meðal nemenda og foreldra. Allir nemendur eru í hóptímum á laugardögum og þá er sameiginlegur kaffitími þannig að foreldrar og börn kynnast og mynda sterkt samfélag. Að sjá önnur börn spila örvar til dáða og foreldrar fá stuðning hver af öðrum.
Það er komin hefð fyrir því að foreldrar í Allegro sjái um veitingar á hóptímadögum. Umsjónarmaður sjóðsins sér alltaf um að það sé til kaffi, te, mjólk og djús sem sjóðurinn greiðir. Foreldrar skaffa síðan aðrar veitingar.
Nánar um kaffiumsjón fyrir nýja foreldra og niðurröðun í kaffiumsjón