Allegro Suzukitónlistarskólinn
Allegro fagnaði 10 ára starfsáfmæli
skólaárið 2008-2009.
Meginmarkmið skólans er að veita ungum nemendum ásamt
foreldrum þeirra vandaða kennslu með uppeldishugmyndir og kennslufræði
japanska fiðluleikarans Shinichi Suzuki að leiðarljósi.
Með því er verið að gefa foreldrum kost á:
- Tónlistarnámi fyrir börn sín
þar sem rækt er lögð við jákvæða
samvinnu og samveru foreldra og barna. Verðskuldað hrós er
hvatning til meiri árangurs!
- Tónlistarnámi þar sem markviss hlustun
er notuð til að auka tónlistarþroska barnanna og tónnæmi.
- Tónlistarnámi þar sem áhersla
er lögð á vandaða tækni og fallega tónmyndun.
- Tónlistarnámi sem er byggt á þeirri
meginhugsun að öll börn geti lært, en hvert og eitt
á sínum hraða, allt frá fjögurra ára
aldri.
Skólastjóri er Kristinn Örn Kristinsson
og yfirkennari Lilja Hjaltadóttir. Nánari upplýsingar
um starfsemina er að finna undir kennslugreinar
og í Skólanámskrá.