Skólaslit og lokatónleikar

Skólaslit og lokatónleikar verða þriðjudaginn 19. maí kl. 17.00 í Langholtskirkju.
Mætingar eru sem hér segir:
Æfing hjá píanóhóp 1 og 2 kl. 15.45 í kirkjunni.
Píanóhópur 4 mæti kl. 16.00 til að æfa saman.
Selló nemendur mæti kl. 16.10 - stutt æfing og uppröðun.
Fiðlunemendur mæti 16.15 - til að stilla, raða upp, æfa byrjanir.
Ungbarnahópur, piano piccolo og píanóhópur 3, mæting kl. 16.45
Foreldrafélagið mun bjóða upp á íspinna eftir tónleika.

Námskeið
Námskeið fyrir píanónemendur verður að líkindum 11-12 júní. Nánar um það síðar.

Nánari upplýsingar um námskeið í Skálholti hér

Boðið er upp á strengjasveitarnámskeið í Kópavogi dagana 4.8. til 15.8. Stjórnandi er Svava Bernharðdsdóttir. Miðað er við að þátttakendur hafi lokið grunnprófi eða 3. bók. Fyrir þá sem vilja taka þátt í Skálholtsnámskeiðinu 13. til 16.8. verður stundatöflunni hliðrað til svo að það gangi upp. Upplýsingar og skráning: www.musicfest.is >

  • Allegro Suzukitónlistarskóli
  • Tranavogi 5
  • 104 Reykjavík
  • Sími 588 6200
  • allegro@allegro.is
  • www.allegro.is