Kæru foreldrar! Nú eru allir hópar, stundaskrá hóptíma og skóladagatal komið á vefsíðu skólans. Allt er þetta með fyrirvara um hugsanlegar lagfæringar og breytingar í haust.Eins og fleiri þurfum við í Allegro að gæta ítrasta aðhalds næsta skólaár. Því miður förum við ekki varhluta af þeim niðurskurði sem á sér stað í opinberum rekstri. Það ber hins vegar að þakka að enn er aðsókn að skólanum góð og biðlisti þó nokkur. Einnig erum við ykkur þakklát fyrir góð skil á skólagjöldum. Tekjur skólans lækka um 13,5 % næsta haust vegna samdráttar hjá sveitarfélögunum, en þau greiða launastyrk vegna tónlistarkennslu. Því hefur verið farið í ýmsar sparnaðaraðgerðir, sem hafa óhjákvæmilega kjaraskerðingu í för með sér fyrir kennara, enda launakostnaður 85% kostnaðar við rekstur skólans. Skólanefnd hefur ákveðið að skólagjöld verði ekki hækkuð næsta skólaár, nema gjald fyrir ungbarnahópa (sjá heimasíðu) Þær breytingar sem snerta nemendur beint er að hópum hefur verið að fækkað þar sem það var talið mögulegt og skólaárið stytt um tvær vikur. Það var ósk menntaráðs Reykjavíkur að skólaárið yrði stytt fremur en að fækka nemendum. Óvenju margir nemendur eru í árgangnum sem er fæddur árið 2000. Því munu ekki allir nemendur fæddir það ár geta byrjað í tónfræði. Skrifstofa skólans verður lokuð frá byrjun júlí og fram til 17. ágúst. Við munum þó fylgjast með tölvupósti af og til. .