Nú fer að líða að skólabyrjun og vonandi erum við öll full orku eftir gott sumarleyfi! Það fyrsta sem nú þarf að gera er að senda inn stundaskrá nemenda svo kennarar geti raðað niður í einkatímana. Vinsamlegast sendið þær á allegro@allegro.is og setjið í efnislínuna STUNDASKRÁ. Munið að tilgreina nafn nemandans. Gott væri að fá stundaskránar sem fyrst en í allra síðasta lagi fyrir 1. september. Mikilvægt að fram komi allir tímar sem til greina koma, en auðvitað mega óskatímarnir fylgja með, við munum gera okkar besta, en því miður verður aldrei hægt að verða við öllum óskum.
Skólastarfið hefst laugardaginn 5. september með upphitun og þá verða allir nemendur að mæta til að fá í hendur miða með stundaskrá einkatíma og hóptíma. Nánari upplýsingar um hvenær eigi að mæta verða sendar í öðru fréttabréfi þegar nær dregur. Einnig er áætlaður fundur með nýjum nemendum kl. 17.30 fimmtudaginn 3. september. Hóptímarnir eru þegar komnir á vefsíðuna eins og fram hefur komið í eldra fréttabréfi. (sjá líka tilkynningar á vefsíðu) Öll kennsla hefst síðan samkæmt skóladagatali mánudaginn 7. september nema strengjasveit sem hefst viku síðar. .