Fundir og skólabyrjun!

Fundur á morgun, fimmtudaginn 3. september kl. 17.30 fyrir alla nýja foreldra sem eru í Allegro, komið með börnin með ykkur! Skólinn er til húsa í Tranavogi 5, annarri hæð. Þar verða tónlistaratriði, þið fáið að sjá húsnæðið, kynnast kennurum og farið verður yfir það helsta sem þið þurfið að vita og spurningum svarað!

Laugardaginn 5. september komum við öll saman í Allegro og setjum í gang vetrarstarfið! Nemendur fá miða með tímunum sínum í vetur, því er mikilvægt að allir mæti! Mætingar eru sem hér segir:

Kl. 9:30 Píanóhópur 1 og 2 (þar með taldir allir sem eru að byrja)
Kl. 10:00 Allir fiðlunemendur í bók 1, 2 og 3, einnig smáfiðluhópur og byrjendur til að fylgjast með.
Kl. 10:30 Píanóhópur 3 (verður 2b) og píanó piccolo
Kl. 11:00 Fiðlunemendur í bók 4 og upp úr.
Kl. 11:30 Píanóhópur 4 og 5 (verður og var í fyrra hópur 3 og 4)
Kl. 12:00 Allir sellónemendur.
Kl. 12:30 Ungbarnahópar.
Ef þið eruð ekki viss um í hvaða hóp börnin eru ættuð þið að geta fundið það á heimasíðunni,ef ekki sendið okkur póst! Hlökkum til að sjá ykkur hress og kát! .