Tónleikar NOBUS

Tónleikar NOBUS
Við hvetjum alla sem vettlingi geta valdið að mæta á tónleika samnorrænu sinfóníuhljómsveitarinnar NOBUS sem verða í Langholtskirkju föstudagskvöldið 16. október kl. 20.00. Ókeypis er fyrir nemendur og aðeins 1000 krónur fyrir aðra gesti. Nobus er sinfóníuhljómsveit ungmenna á aldrinum 10 – 20 og eru samstarfsaðilar Vestfold Ungdomsstrykeorkeste í Noregi, Midtjysk Børne- og Ungdoms Symfoniorkester frá Silkiborg í Danmörku og Allegro.Um 20 strengjaleikarar frá Allegro skólanum taka þátt, sumir nú nemendur við Tónlistarskólann í Reykjavík. Norrænu gestirnir hafa verið hér í viku við æfingar. Efnisskráin er mjög fjölbreytt og skemmtileg allt frá Jóni Leifs til ABBA, og er um klukkutími að lengd.

Framhaldsaðalfundur Íslenska Suzukisambandsins verður haldinn næstkomandi sunnudag 18. október kl. 14:00 í Allegro.

Vetrarfrí
Við minnum á að vetrarfrí er 26. og 27. október í Allegro, þá er engin kennsla.

.