Fyrsta kennsluvika í Allegro 
Nú hefst öll kennsla í Allegro samkvæmt stundaskrá á mánudaginn kemur, 6. september, bæði einkatímar og hópar.

Vinsamlegast athugið að breytingar hafa verið gerðar á tímasetningum á hópum og röðun í hópa. Skóladagatalið hefur líka breyst en þar kemur fram hvaða vikur hálfsmánaðarlegir hóptímar eru. Við mælum með að foreldrar prenti út eintak af stundaskrá hóptíma og skóladagatali.

Foreldrar sem eru að byrja: Fyrsti tími í foreldrafræðslu er þriðjudaginn 7. september kl. 20.00 í Sal skólans.
Mjög áríðandi að allir nýir foreldrar mæti, börnin þurfa ekki að koma með!