Gleðilegt nýtt ár!

DPP_0001 (53K) Kæru foreldrar og nemendur! Allir tímar hefjast samkvæmt stundaskrá mánudaginn 5.janúar. Nú eru komnar á vefsíðuna allar breytingar sem verða á vorönn. Nokkrar breytingar verða á hljómsveit og fiðluhóptímum og bið ég foreldra að skoða vel nýju listana. Einnig uppfært skóladagatal.

Kennarar hafa verið hvattir til að nota hluta fyrsta tímans eftir jól í foreldraviðtöl. Við væntum þess að allir foreldrar mæti! Þið getið búið börnin undir að hluta tímans megi þau lesa bækur frammi!

Við þökkum svo fyrir ánægjulegt samstarf á nýliðnu ári, og vonum að það nýja færi ykkur gæfu og gengi!

Kristinn Örn og Lilja