Það er nú ljóst að Reykjavíkurborg mun skera niður framlög til tónlistarskóla um 12 % næsta skólaár. Munum við þurfa að skoða hvernig hægt verður að mæta því. Líklegt er að önnur sveitarfélög kippi einnig að sér hendinni, og þegar hafa verið samþykktar reglur hjá Kópavogsbæ um hvernig velja skuli úr þá nemendur sem hljóta styrk utan sveitarfélags, en þar verður framlag til tónlistarkennslu einnig lækkað. hvet ég alla foreldra til að fylgjast vel með þróun mála hjá sínum sveitarfélögum, og athuga líka hvenær þarf að vera búið að sækja um styrk fyrir næsta vetur.