Fréttabréf
Allegro Suzukitónlistarskólans

4. janúar 2010

Eiga allir næsta disk til að hlusta á ?

Kæru foreldrar og nemendur!
Gleðilegt nýtt ár!

Við minnum á að öll kennsla hefst strax mánudaginn 4. janúar, bæði einkatímar og hópkennsla.

Búið er að uppfæra hóptímadagskrá og skóladagatal á netinu.

Við vekjum sérstaka athygli á að hljómsveit I byrjar nú 15 mínútum fyrr en fyrir jól, þ.e. kl. 16.15 í stað 16.30. Fyrsta hljómsveitaræfing er 4. janúar!

Að öðru leyti eru ekki miklar breytingar utan að einhverjir hópar hafa skipt um kennara. Við mælum hins vegar með að allir prenti út nýtt skóladagatal fyrir vorönnina, líka vegna hóptímanna.

Kennarar munu bjóða upp á foreldraviðtöl nú í upphafi nýrrar annar. Enda þótt foreldrar mæti í tíma getur verið gott fyrir foreldra og kennara að geta líka rætt saman í næði án barnanna.

Með bestu kveðjum, skólastjórnendur.