Fréttabréf
Allegro Suzukitónlistarskólans

3. júlí 2010

Eiga allir næsta       disk til að hlusta á ?

Áætlun um starfsemi næsta vetrar á vefnum

Nú er komið á vefsíðu skólans skóladagatal, stundaskrá hóptíma, röðun í hóptíma og annað er snertir starfsemi næsta vetrar. Það skal tekið skýrt fram að það geta orðið breytingar, tilfærslur á tímum og þess háttar þegar kennarar fara að vinna saman í haust, því eru þessar upplýsingar birtar með fyrirvara.

Meðal helstu breytinga er að hljómsveit hefst í byrjun annar og stendur í 8 vikur, en síðan tekur við kammermúsík fyrir lengra komna í 6 vikur. Tveir nótnalestrarhópar verða aðra hverja viku til undirbúnings hljómsveitarstarfi. Gerð verður tilraun með nótnalesturshópa fyrir píanónemendur, vikulega fáeinar vikur í senn. Því miður verður tónfræði 4 ekki kennd í vetur, þar sem of fáir yrðu í hóp.

Nú verður skrifstofunni formlega lokað þangað til um miðjan ágúst. Við vonum að hljóðfærin fái stundum að hljóma í sumar því þá verður svo miklu meira gaman að byrja aftur! Það er líka tilvalið að hlusta stundum á diskana þótt hljóðfærin fái frí! 

Þess má líka geta að nýlega voru settar inn myndir frá starfi vetrarins í myndaalbúmið á vefsíðu skólans. Njótið vel!

Hlökkum til að sjá ykkur í haust!

Skólastjórnendur