Fréttabréf
Allegro Suzukitónlistarskólans

4. desember 2009

Eiga allir næsta disk til að hlusta á ?

Æfingar og tónleikar

Við minnum á æfingarnar laugardaginn 5. desember, tímasetning var í síðasta fréttabréfi og er líka á heimasíðunni. Einnig minnum við á auka laugardagstónleikana kl. 12.00 og 13.00 og fyrrihluta útskriftartónleika kl. 14.00 þann 5. desember. Allir velkomnir!

Fréttir frá aðalfundi Foreldrafélags Allegro: Á aðalfundi foreldrafélags Allegro þann 3. desember sl. var kosin ný stjórn foreldrafélagsins. Í stjórnina voru kosnir: Björg Ólafsdóttir, Inga Björg Hjaltadóttir, Hrefna Hallgrímsdóttir, Sebastian Peeters, Ólafía Jónatansdóttir og Helga Melkorka Óttarsdóttir. Stjórnin mun á fyrsta fundi sínum skipta með sér verkum.

Jólatónleikarnir verða sunnudaginn 6. desember og hefjast kl. 14.30 í Langholtskirkju. Strengjanemendur vinsamlegast mætið kl. 14.00 til að stilla. Allir píanónemendur eru beðnir að mæta kl. 12.15 sama dag í Langholtskirkju til að æfa á flygilinn. Æfingin ætti ekki að taka langan tíma ef allir mæta á réttum tíma og vel gengur, og getur því fólk farið heim í millitíðinni. Munið að mæta í spariklæðnaði á tónleikana.

Frá foreldrafélaginu: Eins og undanfarin ár biðlar foreldrafélagið til foreldra/forráðamanna með fingramat (smákökur, mandarínur og annað smálegt sem hægt er að borða af servíettum) á hlaðborð eftir tónleikana. Gott væri ef veitingar væru komnar vel í tíma áður en tónleikarnir byrja (eigi síðar en kl. 14.15). Boðið verður uppá drykki. Eigum notalega stund saman yfir kaffibolla eftir að hafa hlýtt á jólatónleika barnanna!

Tónleikar. Mikið framboð er af góðum lifandi tónlistarflutningi á þessum árstíma. Okkur langar að benda á jólatónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands dagana 18. og 19. desember en þar leika einleik á fiðlu í tvíleikskonsert Bachs þær Sólveig og Rannveig sem voru í Allegro skólanum í fyrra. Nánar á www.sinfonia.is

Einnig bendum við á strengjatónleika Tónlistarskólans í Reykjavík Skipholti 33 föstudaginn 4. desember kl. 16.00 (nemendur Guðnýjar Guðmundsdóttur) og kl 17.00 (nemendur Ara Vilhjálmssonar) en á þessum tónleikum koma einnig fram nokkrir fyrrum nemendur Allegro skólans.

Ennfremur má lesa um hausttónleika Listaháskóla Íslands á heimasíðu skólans, en þar eru líka nemendur frá okkur! Það er ókeypis á alla þessa nemendatónleika.

Foreldrakönnun. Gerð var foreldrakönnun hjá foreldrum barna í Tónlistarskólum í Reykjavík í haust á vegum fræðsluráðs. Við þökkum öllum sem tóku þátt í könnuninni, en finnst þó miður að þátttakan skyldi ekki vera almennari, en svarhlutfall hjá okkur var aðeins 54,5 %. Niðurstöður eru þó harla jákvæðar en þær getið þið kynnt ykkur nánar á þessum tengli hér.

Óskilamunir. Það ber við að hlutir eru skildir eftir í skólanum, og það undarlega er að enginn virðist sakna þeirra! T.d. var skilinn eftir sími mánudaginn 23. nóvember á hljómsveitaræfingu. Einnig eru hér síðan í fyrra tölvustýrðir lyklar að Toyotabifreið og tvennar aðrar lyklakippur!! Ef einhverjir sakna þessara gripa hafið samband við skrifstofuna eða sendið tölvupóst!

Kristinn Örn og Lilja