![]() |
Fréttabréf
8. apríl 2010 |
![]() |
|
Umsóknir fyrir næsta vetur Nú dreifa kennarar umsóknarblöðum fyrir næsta vetur. Mikilvægt er að þið lesið textann vel áður en þið skrifið undir, og athugið vel hvort allar upplýsingar séu réttar á umsókninni. Ljúka þarf greiðslu skólagjalda áður en umsókn er tekin gild, endanleg staðfesting umsóknar er með greiðslu staðfestingargjalds í maí. Þeir sem búa utan Reykjavíkur þurfa að huga vel að hvenær þarf að sækja um vist í tónlistarskóla utan sveitarfélags, vegna fjárhagsástandsins eru sum sveitarfélög með hertar reglur og styttri umsóknarfrest! Staðfestingar á samþykki svaitarfélags þurfa að berast til okkar á skrifstofuna. Upprifjunardagur fyrir fiðlunemendur! Viljum minna ykkur á upprifjunardaginn 11. apríl klukkan 11:00 í Nýja Tónlistarskólanum, Grensásvegi 3. Skráning er hjá Guðrúnu Þórarinsdóttur ( gudthor@btnet.is ) Kennari Þórdís Stross. Píanisti Jón Sigurðsson. Bækur: Fiðlubækur 3 og 4 en ekki Bach dobbel. Verð 1000 fyrir Suzukisambandsfélaga, 3000 fyrir aðra. Hjálpumst að við að halda félaginu okkar lifandi :) Kveðja frá stjórn ÍSS Námskeið - drífa sig að sækja um fyrir 15. apríl! Námskeið á vegum Íslenska Suzukisambandsins verða haldin 4. – 6. júní 2010 fyrir píanó, víólur og fiðlur, allar bækur. Styttra námskeið verður fyrir börn í bók 1 og tilbrigðunum. Gestakennarar verða Peter Hagn-Meincke og Ruth Miura á píanó, Mysie Ferguson og Eva Nilson á víólu. Auk þeirra okkar frábæru íslensku kennarar og kennaranemar. Áætlað verð 9.000 – 12.000 kr. Umsóknarfrestur er til 15. apríl 2010. Umsóknir sendist til suzukisamband@gmail.com. Fram þarf að koma: Nafn nemanda og kennitala, kennari, bók og lag, foreldri og kennitala þess. Skóladagatal uppfært Búið er að uppfæra skóladagatalið á heimasíðunni og eru þar nokkrar breytingar. Þar ber helst að nefna tónleika í tengslum við Barnamenningarhátíð í Reykjavík 23. og 24. apríl, útskriftartónleika 4. og 7. maí og áfanga- og stigspróf 28. og 29. apríl. Eins og fram kemur á dagatalinu eru núna bara tveir kennsludagar í maí. Það er vegna skertra fjárframlaga Reykjavíkurborgar að skólaárið var stytt, en beðið var um það fremur en að fækka nemendum. Þar sem skólaárið var stytt þótti okkur ástæða til að telja nákvæmlega vikudagana þannig að nemendur fengju jafnmarga tíma á skólaárinu án tillits til á hvaða dögum einkatímar þeirra lentu. Sú er skýringin á að bara er kennt mánudag og fimmtudag fyrstu vikuna í maí. |