![]() |
Fréttabréf 19. ágúst 2010 |
![]() |
|
Skólaupphaf Allegro Suzukiskólans Nú fer að líða að upphafi skólastarfsins. Eins og þið hafið væntanlega séð á skóladagatalinu koma nemendur og kennarar fyrst saman laugardaginn 4. september, þið fáið nánari upplýsingar um fyirkomulagið síðar, en þennan dag fáið þið afhentar stundaskrár vetrarins. Nú þarf að senda stundaskrár nemanda til skólans og eins ef einhverjar sér óskir eru um spilatímana. Kennarar munu skoða allar óskir, en því miður verður aldrei hægt að gera öllum til hæfis. Vinsamlegast sendið ekki aðeins óskatíma, en alla tíma sem koma til greina. Að þessu sinni biðjum við ykkur að senda stundaskrárnar beint á kennarana. Netföng þeirra eru öll á heimasíðu skólans undir "símaskrá" Ef einhverjir eru ekki vissir um hjá hvað kennara nemandinn er sendið á allegro@allegro.is Allar stundatöflur þurfa að berast í næstu viku, eða fyrir laugardaginn 28. ágúst. Eins og áður hefur komið fram eru helstu upplýsingar um hópa, stundaskrár laugardaga og skóladagatal komnar á vefinn, en þetta þarf allt að yfirfara og það gætu orðið einhverjar breytingar. Við vonum svo að þið hafið haft það gott í sumarleyfinu og hlökkum til að sjá ykkur innan skamms Skólastjórnendur |