Fréttabréf
Allegro Suzukitónlistarskólans

28. janúar 2010

Eiga allir næsta       disk til að hlusta á ?

Laugardagstónleikar og uppskerutónleikar!

Eins og venjulega eru laugardagstónleikarnir á sínum stað kl. 11.30. Þar eru nokkrir nemendur að ljúka fyrri hluta útskriftar að þessu sinni. Við hvetjum foreldra til að hlusta stundum með börnum sínum á tónleika þótt þau séu ekki að spila sjálf!

En það verða líka aðrir tónleikar kl. 14.00 á laugardaginn - sem við köllum uppskerutónleika. Kennarar skólans hafa þar valið saman skemmtileg atriði, bæði einleiksatriði og samleikatriði. Allir velkomnir!

Maximús

Maxímúsarspilastokkar verða til sölu í skólanum á laugardaginn. Þeir verða seldir á sérstöku Allegro tilboði, eða 1200 kr.  :)  Því miður eru seljendur ekki með posa þannig að þeir sem ætla að kaupa verða að greiða með peningum. Nánar um spilastokkinn hér. Eins og margir vita taka fjölmargir nemendur úr Allegro þátt í Maxumús verkefninu í ár, bæði á tónleikum hjá sinfóníunni og í upptökum.

Litlar fiðlur

Á einhver 1/16 eða 1/32 stærð af fiðlu sem hann væri tilbúinn að selja? Ef svo er, er viðkomandi beðinn að hafa samband við Þórdísi fiðlukennara (s. 694-4778)

Píanóupptökur á netinu

Píanónemendur í 1. hefti eiga stundum erfitt með að læra allar vinstri hendurnar og þá gott að eiga hlustunardiska með vinstri hendi sér. Einnig eru lögin í 3 bók mjög hröð á diskunum, hraðari en æskilegt er að æfa þau í byrjun. Breskur píanókennari hefur sett á netið upptökur af efninu og meira til og þar er hægt að ná í hægari útgáfur af lögunum og einnig vinstri hendi sér. Hægt er að ná í hljóðskjölin (hægrismella - "save target as" eða "vista tengil sem..") og setja á tónhlöðu ("ipod") eða brenna á disk, og þannig sérsníða aukahlustunarefni. Hér er tengill á síðuna