Fréttabréf
Allegro Suzukitónlistarskólans

29. apríl 2010

Eiga allir næsta       disk til að hlusta á ?

 

Kæru nemendur og foreldrar!


Nú stendur yfir síðasta  heila kennsluvikan á þessu ári, en kennt er á mánudag og fimmtudag í næstu viku skv. skóladagatali.

 

Lokaæfingar vegna skólaslita og lokatónleika verða laugardaginn 8. maí.  Allir fiðlunemendur mæti kl. 10.00 stundvíslega

Laugardaginn 8. maí mætir píanóhópur 4 hjá Brynhildi kl.10.30 á sama tíma og hópur 3 (enginn tími hjá hóp 4 kl.12.15)


Aukaæfingar hjá píanóhóp 3  og 4 verða sem hér segir: Föstudaginn 30. apríl kl.17-18 í Allegro (þeir sem eru í spilatíma kl.17, koma beint eftir tíma) Miðvikudaginn 5. maí kl. 17-18 í Allegro.


Skólaslit og lokatónleikar verða 12. maí kl. 17.30 í Langholtskirkju.
Æfing fyrir píanónemendur hóp 2,3 og 4, í kirkjunni, 
stundvíslega kl. 16.45
Strengjanemendur mæti kl. 17.10 til að stilla.

 

Útskriftartónleikar verða 4. maí og 7. maí. Athugið að nauðsynlegt reyndist að breyta tímasetningu  tónleikanna þann 7. maí og munu þeir hefjast 16.30 og 17.30 en ekki 17 og 18 eins og segir á dagatalinu.

 

Umsóknir. Nú eiga allir að vera búnir að skila umsókn fyrir næsta vetur. Athugið að ekki þarf að sækja líka á Rafrænni Reykjavík. Staðfestingargjald verður sent út um miðjan maí. Athugið að eingöngu verður sent til þeirra sem hafa lokið við greiðslu skólagjalda fyrir þetta ár.

 

Skólagjöld hafa nú verið óbreytt í tvö ár, en skólanefnd hefur nú ákveðið að hækka þau sem nemur launavísitöluhækkun síðustu tveggja ára, þá verða full skólagjöld kr 128.000 og gjald fyrir ungbarnahópa kr. 60.000. Okkur finnst þetta miður en reksturinn hefur verið erfiður síðasta ár og minnkuð framlög sveitarfélaga koma bæði niður á kjörum kennara og hafa leitt af sér styttingu skólaársins.

 

Þakkir

Okkur hefur borist sérstakt þakkarbréf frá Hallfríði flautuleikara til Ármanns og fiðluhópsins sem tók þátt í Maximús tónleikunum um daginn og stóðu sig með mikilli prýði. Hallfríður var mjög ánægð og nýja Maximús bókin var söluhæst barnabóka í síðustu viku, og númer tvö á lista yfir sölu allra bóka, næst á eftir Skýrslunni!  (www.eymundsson.is) Þetta er ánægjulegt!

Mig langar líka að þakka öllum sem tóku þátt í tónleikum á Barnamenningarhátíð, sumardaginn fyrsta í Ævintýrahöllinni, föstudaginn í Tónastöðinni og á laugardaginn í Allegro með frumsömdu efni. Allt afar skemmtilegir tónleikar og skólanum til sóma!