Kennt
er á píanó, fiðlu, víólu og selló. Kennslan fer fram
í vikulegum einkatímum þar sem foreldrar mæta með
börnum sínum, og hóptímum sem eru aðra hverja
viku. Einnig eru sérstakir tímar fyrir ungabörn, 0 - þriggja
ára! Upplýsingar um þá gefur Gyða -
gydath@simnet.is
Börn sem hafa byrjað í ungbarnahóp geta þegar þau eru
orðin 3 ára farið í svokallaðan smáfiðluhóp eða píanó piccolo sem brúar bilið
milli ungbarnahópa og hljóðfæranámsins.
Síðar bætast við tímar í tónfræði
og samleik. Formleg tónfræðikennsla hefst um níu ára
aldur. Áhersla er bæði lögð á þekkingu
og markvissa þjálfun. Tónfræðin þykir
skemmtilegt fag, enda koma þar ýmsar skemmtilegar persónur
við sögu!
Samleikur er mikilvægur þáttur hljóðfæranámsins,
um leið og nótnalestur er kominn á skrið, og mjög
vænlegur til að þjálfa færni í nótnalestri.
Starfandi eru tvær strengjasveitir. Ár hvert er einnig hefðbundin
kennsla brotin upp með kammervikum, þar sem nemendur æfast
í samspili, stundum er ákveðið þema, t.d. íslensk
tónlist eða ákveðin tónskáld.